Vöruheiti hér
Stutt lýsing á handverkinu og efnum.
Handverk og list
Smáverslun með handgerðar vörur — Hvert stykkið einstakt, gert með tíma og umhyggju.
Gallerí
Handgerðar vörur úr verkstæðinu — Töskur, Púðar, Dúkar og fleira.
Vörur
Dæmi um vörur — skiptu út myndum, nöfnum og verðum þegar til er.
Stutt lýsing á handverkinu og efnum.
Stutt lýsing á handverkinu og efnum.
Stutt lýsing á handverkinu og efnum.
Stutt lýsing á handverkinu og efnum.
Um okkur
Við erum Sigurður Gunnlaugsson og Sigurlaug Gísladóttir og börnin okkar Gunnhildur, Daníel og Sigurður. Nafnið G.D.S eru upphafsstafir þeirra en einnig stafir bróður þeirra sem hét Gunnlaugur Dan Sigurðursson en hann lést haustið 2023. Gunnhildur og eiginmaður hennar Heiðar Örn búa á Sauðárkrók og eiga þau 3 börn. Daníel og Sigurður Þorri búa hér á Blönduósi sem og við “gamla” settið einnig. Við höfum nokkuð skýra verkaskiptingu í okkar pínu litla fyrirtæki, mamman saumar og bakar, og við sérstakar aðstæður tekur að sér að gera blómaskreytingar, strákarnir og pabbinn smíða en strákarnir eru einnig lægnir við tölvur hverskonar, og dóttirin fer í allt sem þarf ,hvort sem það eru smíðar málun eða afgreiðsla, sem og sér um bókhaldið, hönnun, skipulagningar og margt fleira. Við tökum að okkur að smíða það sem þig vantar eins og t.d útihúsgögn, blómaker, garðhýsi hvers konar, glugga og margt fleira, allt eftir þínu höfði og óskum. Við erum ekki í neinni fjöldaframleiðslu og ætlum okkur ekki að vera. Leitast er við að fremsta megni að endurvinna og nýta efni ef þess er nokkur kostur, bara það eitt gerir þína vöru einstaka sem við gerum fyrir þig. Við erum einnig í öðru handverki, eins og bútasaum, merkingar á handklæði og bráðum einnig í boli, derhúfur og fleira. Við stökkvum líka inn í verkefni eins og t.d að vera með kaffihúsið á hinni frægu Prjónagleði sem haldin er árlega hér á Blönduósi en við rákum um árabil kaffihúsið Húnabúð við góðan orðstír. Hér inni á síðunni okkar setjum við inn myndir af verkum sem við höfum lokið við og afhent og hér verður svo einnig hægt að sjá og panta vörur í litlum mæli.
Hafa samband
Hafðu samband og við svörum eins fljótt og við getum.
hunabudin@gmail.com
8478221
Blönduós
Instagram / Facebook — @hunabud